Eastwood án ástríðu

J. Edgar ** (2 stjörnur)
Leikstjórn: Clint Eastwood
Leikarar: Leonardo DiCaprio, Armie Hammer, Naomi Watts, Josh Lucas, Judi Dench, Jeffrey Donovan, Ed Westwick

Það er frábært hvað Clint Eastwood er afkastamikill sem leikstjóri á efri árum. Hann er orðinn 81 árs og gerir eina mynd á ári, stundum tvær. Í nýjustu mynd sinni segir hann sögu J. Edgar Hoover, stofnanda bandarísku alríkislögreglunnar og yfirmanns hennar í tæplega 40 ár. Hoover var umdeildur maður í embætti og kjaftasögurnar um hann lifa enn góðu lífi í dag.

Eins safarík og mynd um hann hefði getað orðið er J. Edgar fremur andlaus og fyrirsjáanleg. DiCaprio er flinkur leikari þegar hann tekur sig til, en hér rembist hann og rembist en ekkert gerist. Sögumennska hans er þreytandi og elliförðunin óraunveruleg. Reyndar eru aðalleikararnir þrír, DiCaprio, Hammer og Watts, svo afkáralegir í gamlingjagervunum að ekki er með nokkru móti hægt að taka þá alvarlega.

Hér held ég að ekki hafi verið vandað nægilega til verka. Dramatíkin ristir grunnt og aðdróttanir um samkynhneigð Hoover eru feimnislega settar fram. Var hann hommi eða ekki? Skiptir það máli? Var hann svona siðferðislega brenglaður því hann var skápahommi og móðir hans vildi frekar eiga dauðan son en samkynhneigðan? Myndin setur ekki fram neinar kenningar, en ýjar þess í stað að ýmsu svo óræðu að eins mætti sleppa því.

Ég spyr mig, kæri herra Eastwood: Hví gerðir þú þessa mynd fyrst þú hefur ekkert um manninn að segja? Hvar er ástríðan? Hægðu á þér maður. Þú ert kominn á sjálfstýringu.

Niðurstaða: Óttalega bitlaust og klént. Lestu frekar um J. Edgar Hoover á Wikipedia.

Birt í Fréttablaðinu 25.1.2012

2 svör to “Eastwood án ástríðu”

  1. Skrambinn. Mér leist svo vel á þessa ræmu.
    Ég held að það sé ekki til nein einasta mynd þar sem gamlingjaförðun virkar. Maður sér alltaf í gegn um svoleiðis. Augu og raddir er erfitt að feika.

    Hvernig gengur með „Haukur horfir á allra þjóða myndir“ verkefnið?

  2. Það gengur löturhægt. Ennþá bara búinn með tvær. En þriðja bætist við um helgina. Ætla á grænlensku hryllingsmyndina í Bíó Paradís á sunnudagskvöldið.

    Það verður eitthvað mega!

Skildu eftir svar við snobbhaensn Hætta við svar